Finnið þið einhverntímann fyrir því að það er alltaf verið að spyrja ykkur sömu spurninganna? Ég hef fundið mikið fyrir þessu undanfarið og finnst þetta svolítið merkilegt, sérstaklega þar sem virðist engu máli skipta hvort að spyrjandinn er einhver sem þekkir mig lítið sem ekkert eða einn af mínum bestu vinum. Liggur við að ég geti bara deilt út svona svarkortum, finnst ég alltaf vera að svara því sama. Erum ekki að tala um nein viðkvæm málefni eða þannig, enda munu íslendingar seint verða þekktir... read more