Ojojoj... Torkennilegur fnykur var farinn að gera vart við sig í ísskápnum. Bæði ég og Jonni vorum farin að finna sterklega fyrir honum og er ýmislegt matarkyns búið að fá að fjúka í ruslið undanfarna daga, en ekkert lagast lyktin. Þá var frystirinn tekinn og þíddur (ekki veitti nú af) og þegar það dugði ekki, allt tæmt úr ísskápnum og hann þrifinn ítarlega. En nei. Rifum meira að segja kvikindið úr sambandi og drógum hann fram á gólf, grunandi að eitthvað væri farið að rotna á bakvið, en ekkert... read more